Nemendaráð & DJar Holtaskóla 2006
19.05.2006 19:29:35 / varaformaður

Gleðilegt sumar!

Vildi bara óska ykkur allra gleðilegs sumars og hafið það gott og við sjáumst svo aftur á næsta ári með nýju nemendaráði og enn fleiri skemmtilegheitum :]

Sveindís


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 22:01:39 / heba

ATH ATH!

Jæja.. Opnu húsin ganga ágætlega fyrir sig þrátt fyrir að það sé bara einu sinni á tveggja vikna fresti, og við viljum þakka öllum sem hafa verið að mæta vel ;) Og ég hvet ykkur öll til að koma og taka þátt.

Miðstig: annan hvern miðvikudag kl. 16:30-17:30

Efstastig: annan hvern fimmtudag kl. 19:30-21:30


Svo er það bara að mæta og hafa það skemmtilegt..
-Ég vil einnig minna á sjoppuna okkar góðu þar sem hægt er að kaupa sér nammi og gos eins og þið öll vitið :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 17:25:08 / varaformaður

Sundlaugarpartý!

Jæja nú var haldið með pompi og pragt  sundlaugarpartý fyrir 8-10 bekk í Holtaskóla,  var hún haldin í Gömlu sundlauginni svokallaðari,   alveg fullt af fólki mættu og var alveg brjálað fjör,  ofsafengin tónlist frá DJ unum og skipst var á að henda fólki út í laugina :]

Það var svo góð mæting að það er bara spurning að hafa þetta árlegt???

Svo er Opið Hús hjá 1 og 2 bekk mánudaginn 6 febrúar,  og opið hús hjá 3 og 4 bekk þriðjudaginn 7 febrúar,  leiktæki - tónlist-  leikir-  sjoppan - Allt á sínum stað

Og við viljum að endingu minna á að Opið hús hjá 5-7 bekk Fellur niður miðvikudaginn 8 Febrúar,  því þá er starfsdagur!

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 09:58:58 / varaformaður

ATH ATH ATH

Nú verður loksins tekið á þessari síðu og hún uppfærð og gerð flott að nýju :]

Við höfum verið frekar slök undanfarið ég viðurkenni það fúslega,  en nú erum við öll tilbúin að láta hendur standa fram úr ermum og Gera eitthvað hérna! 

Við byrjum eflaust með myndum af sundlaugarpartýinu sem er Fimmtudaginn 3 Febrúar kl 20:00 niðri í Gömlu sundlaug

8-10 bekkur velkominn!

100 krónur inn :]

Vonum að sem flestir mæti!  Sjoppa og DJar og ofur fjör!



» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 16:44:25 / heba

ATH Breytingar á opnu húsunum!

eins og er hefur verið ákveðið að Opnu húsin núna framvegis verði aðra hverja viku. sem sagt t.d. núna þessa viku er bara Opið hús fyrir Unglingastigið(í dag, fimmtudag)og svo næstu viku fyrir Miðstigið (miðvikudag).. svo koll af kolli!

Við vonum bara að sem flestir geri sér fært um að koma og taka þátt:haha:

^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^

En semsagt í dag er OPIÐ HÚS fyrir Unglingastig kl.8-10

Fótboltaspilskeppni verður og flott verðlaun í boði!:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 12:34:25 / heba

Halló krakkar..

Við í nemendaráðinu erum að fara að bæta þessa síðu og gera hana flottari og svona svo þið getið kíkt oftar við og fengið nýjar upplýsingar ;) Biðjumst bara afsökunar á hversu lítið er unnið hérna en þetta verður allt komið í eðlilegt hóf eftir áramót! Nú er jólastússið allt að skella á og við viljum minna á Jólabingó-in.. Sjoppan á sínum stað og eitt bingó spjald kostar 100 krónur.

Í gær þann 6.desember var bíngó fyrir 1-2 bekk og síðar þann dag var 3-4bekkur og allt gekk mjög vel og flott dót voru í verðlaun

Svo eru Bingó-in auðvitað í dag --> sjá miða sem þið fenguð hjá kennurum og mæta svo í jólaskapi og spila skemmtilegt bingó :D

 

kveðja. Þórunn Heba


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 19:07:55 / formaður

Ekkert opið hús í prófaviku...

Krakkar!

Í prófavikunni verða engin opin hús vegna þess að við viljum að nemendur nýti tímann til að undirbúa sig vel fyrir prófin.

Verið nú dugleg að lesa yfir glósur og verkefni og gangi ykkur vel í prófunum;)

-NFHoltaskóla


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 21:02:13 / formaður

Stjörnustríðið!!!

Jæja... Nú er þettta **stjörnustríð** okkar komið alveg vel á skrið... Ég vil bara segja ykkur að það eru flott verðlaun og það lið sem er í fyrsta sæti eru stelpurnar í

LIÐ 5 : Elva Margrét, Gunnhildur, Guðrún og Lilja. Þær stelpur eru búnar að safna sér inn hvorki meira né minna en 42 stigum!!!

En þið eruð búin að vera alveg ótrúlega dugleg að mæta og samtals eru komin 418 stig!!! ;)

Haldið áfram að vera duglega að mæta og endilega komið með hugmyndir fyrir okkur;)

- Formaður NFH

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 15:05:39 / varaformaður

Grænt Og SvartHvítt!

Jææja krakkar þá er allt komið á fullt eftir Vetrarfríið sem var síðastliðinn Fimmtudag og Föstudag. 

Í kvöld hjá 5-7 Bekk verður Grænt Kvöld,  allir sem hafa tök á að mæta í einhverju grænu geri það :]  Og Þið hin sem hafið ekki tök á því,  mætið bara samt og skemmtið ykkur! 

Annað kvöld,  Fimmtudag verður svokallað Black&White Kveld,  og allir sem hafa tök á [nú er ég alveg viss um að það séu allir]  Mæti í svörtu eða hvítu,  eða bæði!  Eitthverju sem inniheldur þessa "liti" :]

Sjoppan ávallt á sínum stað,  Brjáluðu Dj-arnir í  Kakk Grrlpower og Tækin.  Allt í gangi!  Allir að mæta! :]

Varaformaður,  Sveindís

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2005 14:30:05 / Almar

Ekki opið hús...

...hjá EFSTA stigi í þessari viku!:( Það er nefnilega vetrarfrí á fimmtudag og föstudag:) En endilega mætið í næstu viku því þá verður mikið fjör (eins og venjulega;))

-Þórdís...


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2005 15:36:47 / heba

Vikan 24-27.Október

Diskótek verður haldið fyrir Fyrsta og Annan Bekk í dag á Sal skólanns. Þar verður farið í ýmsa leiki. Kl.5-7 ;)

Á morgunn Þriðjudag er Diskó fyrir 3-4Bekk.. Allir að mæta í þeim árgöngum! kl.5-7

Svo á Miðvikudaginn Er opið hús fyrir Miðstig. Dagskrá ekki alveg plönuð en við látum vita... Fjörið byrjar kl.5-7

Fimmtudaginn Opið hús 8unda-10unda Kl.8-10.. Dagskrá kynnt síðar


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.10.2005 20:46:33 / heba

19-20.Október


Efstastig

Hjá Efstastigi verður svokallað 'Gangsterkvöld' þar sem allir eru beðnir um að klæða sig upp í viðeigandi fötum og koma í rapp/hip hop fílingi og hlusta á tónlist og Svo verður Rímnastríð fyrir þá sem þora og verðlaunin eru inneign í sjoppunni okkar góðu. Endilega allir í 8-10 bekk í Holtaskóla að mæta kl.8-10 og halda stemningunni uppi 8) 20.Október

Miðstig

Hjá Miðstigi verður Þythokký mót endilega allir að koma með góða skapið og taka þátt í því.. Sigurvegarinn fær 350kr. inneign í sjoppunni. Fjörið hefst kl.5 og stendur yfir til kl.7. krakkar í 5-7bekk í Holtaskóla velkomin! ;) 19.Október

 

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.10.2005 16:13:25 / Almar

Formaðurinn loksins orðin 15 ára ..


 

 

*Þórhildur*

Komiði sæl.. Vildi bara óska henni Þórhildi til hamingju með 15 ára afmælið sitt .. Til hamingju með daginn Þórhildur:haha:

 

          Kv. Almar


Já Hann Almar átti þessa fallegu hugmynd um að blogga í tilefni dagsins.. ég vildi líka fá að skrifa smá pistil til þín og óska þér til hamingju með árin fimmtán! Og eins og þú veist þá ert þú frábær stelpa sem á eftir að ná langt í framtíðinni! ég sé eftir því að hafa ekki einu sinni sagt ,,til hamingju'' eins og ég ætlaði alltaf að gera í skólanum en gerð ekki! Eitthverra hluta vegna en bara svo þú vitir þá áttu inni hjá mér eitt stórt knús:haha: Til Hamingju!!

   Kv. Þórunn Heba


 

 

Almar & Þórunn


» 13 hafa sagt sína skoðun

12.10.2005 13:53:10 / formaður

ATH! Leiðrétting á auglýsingum!

Halló krakkar. Komið hefur upp smá miskilningur vil ég endilega biðjast afsökunar á öllum veseni.  Eins og þið vitið er ekki opið hús í dag (miðvikudag) vegna fundar en dagskráin á fimmtudeginum helst óbreytt.

Þannnig að svona verður þetta:

Miðstig, miðvikudagur 12. október (í dag): Opið hús ---> Lokað

Unglingastig, fimmtudagur 13. október: Þythokkí- keppni! 350 kr. inneign í sjoppunni.

Miðstig, miðvikudagur 19. október: Þythokkí- keppni! 350 kr. inneign í sjoppunni!

Unglingastig, fimmtudagur 20. október: Opið hús (nánari dagskrá tilkynnt síðar).

-Einnig vil ég segja ykkur frá því að myndasíðan okkar er í ólagi eins og er svo að það verður líklegast eitthvað vesen með myndir.-

-Takk fyrir, NFH

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.10.2005 21:44:26 / doppa

Ekkert Opið Hús MIÐSTIG!

Því miður verður ekkert opið hús hjámiðstiginu (5-7) miðvikudaginn 12.október! :(

Við vitum samt ekki alveg hvort það verði opið hús hjá Efstastigi (8-10) en við látum ykkur vita......

Þythokkímótið verður í næstu viku hjá miðstiginu og þá mæta allir:D

       

            -Sigrún


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2